Hlaup.is fagnar 24 ára afmæli í dag

uppfært 25. ágúst 2020

Hlaup.is fagnar í dag, 13. ágúst, 24 ára afmæli sínu. Á þessum 24 árum hefur Hlaup.is kappkostað að þjóna hlaupurum á Íslandi, íslenska hlaupasamfélaginu til heilla. Ástæða er til að þakka ykkur hlaupurum fyrir áhugann og samfylgdina allan þennan tíma því án ykkar væri hlaup.is ekki til. Til gamans má geta að hlaup.is vefurinn er eldri en rótgrónir vefir eins og mbl.is og visir.is.

Spennandi tímar eru framundan á hlaup.is. Nú sér fyrir endann á nokkurra ára vinnu sem mun skila sér í nýjum hlaup.is vef innan tveggja vikna. Því má segja að þrátt fyrir háan aldur sé hlaup.is á fullri ferð og enn frekar verður gefið í með nýjum vef.  Með nýjum vef og nýju útliti ákváðum við líka að gera breytingar á logo hlaup.is eins og sjá má hér á nýjum vef.

En slíkar breytingar kosta mikla vinnu og fjármuni. Hlauparar geta sannarlega lagt sitt af mörkum með því að kaupa myndir eða skrá sig á hlaupanámskeið á hlaup.is. Hlaupahaldarar geta lagt sitt af mörkum með því að nota skráningarkerfi hlaup.is. Og þá minnum við auglýsendur á þann frábæra kost sem hlaup.is er fyrir hlaupa- og heilsutengdar vörur. Á nýja vefnum munum við einnig bjóða upp á að hlauparar greiði fast mánaðargjald til að styðja við hlaup.is.

Kæru hlauparar; haldið áfram að koma við á síðunni okkar, glugga í úrslitin, skoða myndirnar, skipuleggja hlaupadagatalið, lesa fréttirnar, skrá ykkur í hlaup, nota hlaupadagbókina og kryfja yfirheyrslurnar. Því fleiri, lengri og betri heimsóknir, því betri síða. Án ykkar gerist ekkert og við munum halda áfram að bjóða hlaupaurum upp á þjónustu og hlaupatengdan fróðleik og afþreyingu.

Hlaup.is hlakkar til að þjónusta hlaupara áfram og óskar íslenska hlaupasamfélaginu til hamingju með daginn.