Hlaup.is fagnar í dag 25 ára afmæli sínu

uppfært 13. ágúst 2021

Hlaup.is fagnar í dag, þann 13. ágúst, 25 ára afmæli sínu. Frá 1996 hefur hlaup.is haft það að markmiði að þjónusta íslenska hlaupasamfélagið með meiri og betri hætti en þekkst hefur hér á landi. Við kappkostum að veita íslenska hlaupasamfélaginu eins mikla þjónustu og afþreyingu og mögulegt er á hverjum tíma.

Fyrir ári síðan leit dagsins ljós ný útgáfa af hlaup.is, þar sem útliti vefsins og þjónustu var umbylt. Lykilþættir eins og hlaupadagskráin, myndbirtingar, birting úrslita og skráningarkerfi voru endurhannaðir með þarfir íslenska hlaupasamfélagsins í huga. Nú geta hlauparar einnig stofnað eigið svæði á hlaup.is þar sem þeir geta safnað saman myndum, úrslitum og skráningum á einn stað og fljótlega einnig æfingunum sínum. Slíkan vettvang er ekki að finna annarsstaðar hér á landi. Meðal annarra nýjunga er t.d. sjálfvirk uppfærsla á ársbesta, þ.e. bestu tímum ársins í hinum ýmsu vegalengdum í karla- og kvennaflokki.

Ennþá er stefnt að því að bæta vefinn, t.d. er í bígerð ný útgáfa af æfingadagbók (með tengingu hlaupaúra) svo eitthvað sé nefnt, ásamt ýmsu öðru sem er í farvatninu. Þess vegna minnum við íslenska hlaupasamfélagið á að beina viðskiptum sínum til hlaup.is t.d. með myndakaupum og hlaupahaldara á að nýta sér skráningarþjónustu hlaup.is. Með því að versla við hlaup.is þá styður þú við betri þjónustu við íslenska hlaupasamfélagið.

Einnig má bæta við að hlaup.is er frábær auglýsingakostur fyrir fjölmörg fyrirtæki. Að lokum minnum við á að hægt er að styrkja hlaup.is með mánaðarlegum greiðslum eða öðrum hætti, en allt okkar starf er meira og minna unnið í sjálfboðavinnu og allar tekjur vefsins fara í að byggja hann upp og gera hann betri fyrir ykkur hlauparar :-)

Þið getið alltaf haft samband á hlaup@hlaup.is.