birt 24. janúar 2005

Hlaup.is hefur nú hafið sölu á höfuðljósum fyrir hlaupara. Mikið af fyrirspurnum hafa borist vegna höfuðljósa og nokkur umræða spunnist um skort á birtu í keppnishlaupum vetrarins, sérstaklega þó Powerade hlaupinu. Nú er lausnin komin, því þessi örsmáu díóðuljós lýsa hreint ótrúlega mikið, það hefur umsjónarmaður hlaup.is sannreynt í prufuhlaupi sem farið var í um helgina. Ljósin eru aðeins 36 gr. að þyngd með batteríum og því ekki til trafala á hlaupum.

Einnig er hægt að nota þetta í útivistina t.d. í hellaferðirnar eða hreinlega til að auðvelda sér að sjá þar sem erfitt er að koma ljósi að. Skoðið nánari upplýsingar í verslun hlaup.is á slóðinni: https://www3.mmedia.is/hlaup/prodtype.asp?prodtype=58