birt 09. apríl 2004

Nokkrir íslenskir hlauparar tóku þátt í Frankfurt maraþoni um daginn. Þeir stóðu sig vel, en þó allra best gamla kempan Sigurður P. Sigmundsson sem hljóp á 2:37:32 í 63. sæti í heild og 5. sæti í sínum aldursflokki. Guðmann Elísson var á 2:45:08, Jón Jóhannesson var á 2:57:12 og Hjálmtýr Hafsteinsson var á 3:13:42. Þetta var stórt hlaup, rúmlega 9.000 í maraþoninu og 2.500 á línuskautum.