birt 09. apríl 2004

Hlaupasíðunni hafa borist fregnir af því að enn einn Íslendingurinn hafi tekið þátt í New York Maraþoni. Þetta er Torfi Leósson, en hann er aðeins 19 ára og nýlega byrjaður að hlaupa. Hann var á tímanum 4:39:35. Torfi keppti líka í Gamlárshlaupi ÍR og kom þar 79 í mark. Vel af sér vikið og við vonum að hann haldi áfram að æfa.