Laugavegshlaupið haldið í 24. sinn á laugardaginn

uppfært 25. ágúst 2020

Laugardaginn 18. júlí næstkomandi fer Laugavegshlaupið fram í 24. sinn. Alls eru 559 hlauparar skráðir í hlaupið, 191 konur og 368 karlar.

Íslenskir þátttakendur eru 512 talsins, en 47 þátttakendur eru frá öðrum löndum, flestir þáttakendur eru frá Austuríki og Þýskalandi, eða 5 hlauparar frá hvoru landi. Skráðir þátttakendur í Laugavegshlaupinu eru frá 20 mismunandi löndum.

Hlaupið hefst í Landmannalaugum og lýkur í Húsadal í Þórsmörk. Eins og margir vita er Laugavegurinn ein fjölfarnasta og vinsælasta gönguleiðin um íslensk öræfi. Venjan er að ganga leiðina á fjórum dögum en met hlaupatími á þessari 55 km leið í Laugavegshlaupinu er 3 klukkustundir og 59 mínútur í karlaflokki og 5 klukkustundir í kvennaflokki.

Síðustu ár hafa erlendir hlauparar verið um 50% þátttakenda, en vegna sérstakra aðstæðna þá eru erlendir hlauparar nú aðeins 8%. Það sem vekur áhuga einnig er að núna eru um 55% hlaupara að hlaupa Laugavegshlaupið aftur, miðað við 30% síðustu ára.

Þorbergur Ingi Jónsson hefur unnið síðustu 3 ár og telst sigurstranglegur í ár, hann hefur hlaupið 6 sinnum og sigrað jafn oft. Keppnin kvenna megin verður æsispennandi þar sem Anna Berglind Pálmadóttir, Rannveig Oddsdóttir og Elísabet Margeirsdóttir keppast um sigurinn, en þær eru reynslumiklir Laugavegshlauparar. Anna Berglind vann hlaupið 2019. Höskuldur Kristvinsson mun hlaupa sitt tuttugasta Laugavegshlaup, en hann keppir í flokki 70 ára og eldri.