Magnaður Strava art leikur hjá Hlaupahópi FH

uppfært 25. ágúst 2020

Einn af öflugri hlaupahópum landsins, Hlaupahópur FH hefur ekki staðið auðum höndum í samkomubanni undanfarinna vikna. Hópurinn efndi til svokallaðs Strava art leiks sem felst í því að þátttakendur „teikna" skemmtilegar myndir með hlaupaleið sinni.

Útkoman er næsta ótrúleg en tilkynnt var um þrjú efstu sætin á Instagram síðu hópsins í vikunni. Skemmtilegt framtak hjá þessum einkar öfluga hlaupahópi. Áhugasömum er bent á skemmtilega Instagramsíðu Hlaupahóps FH undir @hlaupahopurfh.

Straca Leikur Fhhannes Jón
Strava Leikur FH Helgi
Strava Leikur FH Tómas Beck