Meira af Del Passatore 100 km ofurhlaupinu

birt 06. júní 2004

Eins og áður hefur komið fram, þá stóðu þeir félagar Svanur Bragason og Pétur Reimarsson sig frábærlega vel í Del Passatore 100 km ofurhlaupinu. Svanur varð 7 af 199 í sínum aldursflokki, 55-59 ára og Pétur varð 20 af 165 í aldursflokknum 50-54 ára. Ekkert minna en frábær árangur !