Minningarhlaup v. Guðmundar Karls Gíslasonar í dag 14. júní

birt 14. júní 2004

Í dag mánudaginn, 14. júní kl 18.00, munu félagar Guðmundar Karls safnast saman við Gljúfrastein í Mosfellsdal. Þaðan verður farið á nokkrum bílum að slysstað við veginn að Skálafelli. Þar verður þögul stund en að því loknu verður horft fram á við og hlaupið að Gljúfrasteini, sem er um það bil 7 km.