Nánari upplýsingar um fræðslu- og kynningarkvöld RM

birt 07. júní 2004

Langar þig að æfa fyrir Reykjavíkurmaraþon, en vantar aðhald og aðstoð við undirbúninginn ?

Gunnar Páll Jóakimsson sér um ókeypis kynningar- og fræðslukvöld í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal miðvikudaginn 9. júní kl. 20-21:15 (3. hús frá Laugardalshöll 2. hæð). Allir velkomnir!
Sjáðu auglýsingaplakatið.

Dagskrá:

  • Æfingaáætlanir.
  • 10 vikna æfingaáætlun fyrir þátttöku í 10 km hlaupi.
  • Hvernig æfum við fyrir hálfmaraþon og maraþon?
  • Helstu atriði hlaupaþjálfunnar, næring, teygjur, styrkingaræfingar o.fl.
  • Hlaupaleiðir á höfuðborgarsvæðinu.
  • Kynning á Reykjavíkur maraþoni.
  • Hlaupahópar á höfuðborgarsvæðinu.
  • Hlaupadagskrá sumarsins kynnt.
  • Verslun hlaupasíðunnar hlaup.is kynnir vörur fyrir hlaupara.
  • Skráning í undirbúningshópinn sem æfir fyrir 7 eða 10 km í Reykjavíkurmaraþoni 21. ágúst nk.

Stofnaður verður undirbúningshópur fyrir 7 og 10 km. Þeir sem skrá sig í hópinn fá m.a.:

  • Að taka þátt í hlaupaæfingum með íþróttakennara tvisvar í viku fram að Reykjavíkurmaraþoni.
  • Vasaútvarp frá Margt Smátt
  • Stuttermabol
  • Drykkjarbrúsa frá Poweraid
  • HLAUP, Hlaupahandbókina 2004 eftir Gunnar Pál.
  • Að kaupa 10 miða sundkort á aðeins 1000 krónur


Þátttökugjald 3000 kr. Upplýsingar í síma 535-3705. Þú getur líka skráð þig í hópinn á WWW.MARATHON.IS. Undirbúningshópurinn mun hlaupa frá Laugardalslaug þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:30.