Nýtt hlaup, Ármannsdagshlaup 6 og 11 km

birt 31. maí 2004

Þann 12. júní n.k. mun Glímufélagið Ármann halda fjölskyldu- og íþróttahátíð í Laugardalshöll og nágrenni. Fyrirhugað er að halda almenningshlaup sama dag og boðið verður upp á tvær vegalengdir 6 km göngu/hlaup og 11 km hlaup/línuskautar. Skráningargjald er 500 kr. Forskráning er hér á Hlaupasíðunni fram á föstudagskvöldið 11. júní. Nánari upplýsingar og kort af leiðunum hér á Hlaupasíðunni.