Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2021 frestað til 18. september

uppfært 04. ágúst 2021

Íþróttabandalag Reykjavíkur hefur ákveðið að fresta Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka um fjórar vikur, til 18. september 2021 vegna óvissu um hvaða næstu skref verða tekin varðandi samkomutakmarkanir. Markmiðið er að gera sem flestum kleift að taka þátt en um leið gæta að öllum sóttvörnum.

Mikilvægur þáttur Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka er Hlaupastyrkur, þar sem þátttakendur safna fyrir góðgerðarfélög á Íslandi. Árið 2019 var sett áheitamet þar sem hlauparar söfnuðu 167.483.404 krónum til 181 góðgerðarfélaga. Í fyrra þegar hlaupinu var aflýst þá safnaðist 72.658.607 krónur til 159 góðgerðarfélaga. Það myndi verða þungt högg fyrir safnanir félaganna ef viðburðinum yrði aflýst annað árið í röð og af þeim sökum verður honum frestað í þeirri von að ástandið batni.

Mörg góðgerðarfélög stóla á hlaupastyrk og því eru flestir hvattir til að hlaupa og safna, eða styrkja aðra hlaupara.

"Við viljum ekki aflýsa viðburðinum því við vitum að áheitasöfnun hlaupsins skiptir mjög miklu máli fyrir góðgerðarfélögin sem safna miklum fjármunum í gegnum Hlaupastyrk.is og vonumst við eftir góðri þátttöku í söfnuninni” segir Frímann Ari Ferdinandsson, framkvæmdastjóri ÍBR. "Nú styttist í að skólahald og skipulagt íþróttastarf hefjist og því að var tekin ákvörðun um að fresta Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka um mánuð vegna óvissu um næstu skref aðgerða vegna faraldursins.”