birt 10. maí 2004

Eins og fram hefur komið áður, þá eru allar Squeezy gel birgðir búnar. Ég var búinn að stilla mig af þannig að ég væri örugglega með nægar birgðir fyrir Kaupmannahafnarmaraþon, en þá kom upp framleiðslugalli í umbúðum sem tafði sendingu til mín um 4 vikur. Sendingin átti svo að fara frá Bretlandi síðastliðinn fimmtudag, en gerði það ekki. Ég er því í vandræðum, en reikna með að taka nóg heim með DHL á morgun til að tryggja að þið farið ekki gellaus út.

Þið hlauparar sem eruð að fara til Kaupmannahafnar og þurfið gel, vinsamlegast sendið mér tölvupóst á torfi@hlaup.is með beiðni um að ég hafi samband við ykkur þegar gelið kemur. Látið einnig fylgja símanúmer með. Ég reikna svo með að geta afgreitt ykkur með gel á fimmtudagskvöldið.