uppfært 07. júní 2021

Rífandi gangur í hlaupurum þrátt fyrir þoku á Hengilsvæðinu í nótt.

Keppendur Salomon Hengil Ultra utanvegahlaupinu hafa hlupið í alla nótt en þeir Búi Steinn Kárason og Sigurjón Ernir Sturluson leiða 161 km í karlaflokki og þær Mari Jaersk og Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir leiða kvenna flokkinn. Fimmtán keppendur hófu hlaupið klukkan 14:00 í gær en þrír hafa hættu keppni í gærkvöldi. Keppendur í 106 km hlaupinu voru ræstir klukkan 22:00 í gærkvöldi en 46 keppendur hófu þá keppni. Hlynur Guðmundsson og Jón Ingi Árnason leiða karlaflokkinn í 106 km og þær Eygló Traustadóttir, Edda Laufey Laxdal og Anna Halldóra Ágústsdóttir leiða í kvennaflokki.

Salomon Hengill Ultra Trail er stærsta utanvegar hlaup Íslands og enda um að ræða eina fallegustu hlaupaleið landsins. Klukkan 08:00 á laugardagsmorgun ræsa svo 260 keppendur í 53 km hlaupinu og í hádeginu ræsa rúmlega 600 keppendur og klukkan 14:00 ræsa 10 km og 5 km en um það bil 500 keppendur taka þátt í þeim hlaupum.

HEN2021 0249
106 km hlauparar eftir 2 km

Rúmlega 1300 keppendur eru skráðir sig til leiks í allar vegalengdir keppninar um helgina en Hengill Ultra var fyrst hlaupin árið 2012. Þetta er því í tíunda sinn sem hlaupið fer fram en í þessi tíu ár hefur hlaupið þróast og umgjörð þess vaxið á milli ára. Hlaupið í fyrra sprengdi öll fyrir met en þá voru um 700 þátttakendur sem hlupu en hlaupið hefur verið í fimm mismunandi vegalengdum en í ár bætist enn ein vegalengdin í hlaupið en það er svokallað 100 mílna hlaup en það er eins nafnið gefur til kynna 161 km hlaup.

Lifandi streymi er frá mótinu á facebook síðu mótsins https://www.facebook.com/HengillUltra. Skipt á milli myndavéla en þær eru í Hveragerði, Ölkelduhálsi og í Sleggjubeinsskarði.