Úrslit úr Akureyrarhlaupinu - Íslandsmeistaramót í 10 km götuhlaupi

uppfært 06. júlí 2021

Akureyrarhlaup fór fram í blíðskaparveðri á Akureyri í gærkvöld fimmtudaginn 1. júlí þar sem 150 keppendur hlupu um götur bæjarins. Keppt var í 5 km, 10 km og hálfmaraþoni og var 10 km hlaupið jafnframt Íslandsmeistaramót í greininni. Vegna vatnavaxta í Eyjafjarðará þurfti að breyta hlaupaleiðinni í hálfmaraþoni á síðustu stundu og var brugðið á það ráð að hlaupa 10 km hringinn tvisvar og bæta við hann 1,1 km lykkju til að ná 21 km.

Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir úr UFA og Arnar Pétursson úr Breiðabliki lönduðu Íslandsmeistaratitlunum. Sigþóra hljóp á 36:57 sem er hennar besti tími til þessa og Arnar hljóp á 31:51. Önnur kvenna var Hulda Elma Eysteinsdóttir UFA á 43:19 og þriðja var Linda Heiðarsdóttir á 43:26. Annar karla var Teddy Sum á 34:03 og þriðji var Egill Örn Gunnarsson á 40:12.

Akureyrarhlaup 2021 PEDR2019
Sigþóra Brynja Kristinsdóttir

Í 5 km hlaupi sigraði Baldvin Þór Magnússon UFA í karlaflokki á nýju brautarmeti 14:40 og fyrst kvenna var Sonja Sif Jóhannsdóttir á 19:52. Annar karla var Guðlaugur Ari Jónsson úr ÍR á 17:17 og þriðji var Gunnar Marteinsson á 18:13. Önnur kvenna var Eva Kristín Evertsdóttir á 20:39 og þriðja var Guðný Petrína Þórðardóttir á 21:56.

Akureyrarhlaup 2021 Baldvin Þór Magnússon PEDR1966
Baldvin Þór Magnússon

Í hálfmaraþoni var Jörundur Frímann Jónasson úr UFA fyrstu karla á 1:18:21 og Rannveig Oddsdóttir úr UFA var fyrst kvenna á 1:27:23. Annar karla var Aron Ýmir Pétursson á 1:19:04 og þriðji var Reynir Bjarni Egilsson á 1:19:30. Yvonne Höller var önnur kvenna á 1:42:55 og Birta Kristín Helgadóttir var þriðja á 1:48:11.

Akureyrarhlaup 2021 PEDR2719
Rannveig Oddsdóttir