uppfært 04. nóvember 2020

UFA Eyrarskokk hefur undanfarin ár staðið fyrir hlaupasyrpu yfir vetrarmánuðina þar sem keppt er í stigakeppni einstaklinga og liða í fimm hlaupum sem fara frá á tímabilinu frá október til mars. Útfærslan hefur tekið breytingum í gegnum árin sem meðal annars hafa miðað að því að gera keppnina meira spennandi og laða að fleiri hlaupara en þá sem elska að keppa við klukkuna. Undanfarin ár hefur stigakeppni liða því tekið mið af mætingu liðsmanna en ekki röð þeirra í mark eins og áður var. Þessar breytingar hafa án efa átt sinn þátt í því að fjöldi þátttakenda hefur vaxið ár frá ári.

Í haust stóð undirbúningsnefndin frammi fyrir nýrri áskorun í skipulagi hlaupanna. Það er að skipuleggja viðburð þar sem margir gætu tekið þátt án þess að koma saman. Fyrsta hlaupið var haldið í lok október miðað við þær fjöldatakmarkanir sem þá voru í gildi. Gefin var út hlaupaleið og búið til segment á Strava til að geta fylgst með þátttökunni og raðað keppendum í einstaklingskeppninni. Keppendur stimpluðu sig einnig inn með því að senda mynd af sér á viðburðinn, þannig gátu þeir sem ekki nota Strava líka verið með, en voru þó ekki gjaldgengir í einstaklingskeppninni. Gefnir voru þrír sólarhringar til taka þátt og mátti hlaupa hringinn hvenær sem var á þeim tíma. Til að búa til meiri stemningu í kringum hlaupið var ljósmyndakeppni bætt við liðakeppnina. Liðin gátu sent inn myndir í fimm flokkum og fyrir bestu myndina í hverjum flokki var gefið eitt aukastig í liðakeppninni.

Góð þátttaka var í hlaupinu, en 84 hlauparar fóru leiðina. Margir sprettu úr spori og kepptu um góðan tíma á segmentinu. Þorbergur Ingi Jónsson náði besta tíma karla 28:28 og Anna Berglind Pálmadóttir besta tíma kvenna 35:39. Tíma tíu fyrstu karla og kvenna má sjá í töflunni.

Karlar

Þorbergur Ingi Jónsson

28:28

Hermann Jónsson

30:03

Jörundur Frímann Jónasson

30:53

Helgi Rúnar Pálsson

32:22

Kjartan Sigurðsson

34:27

Ellert Örn Erlingsson

34:35

Valur Örn Ellertsson

34:37

Gunnar Atli Fríðuson

36:04

Sveinn Þorkelsson

38:09

Magnús Ingólfsson

38:18

Konur

Anna Berglind Pálmadóttir

35:39

Sonja Sif Jóhannsdóttir

36:10

Guðrún Svanbjörnsdóttir

38:44

Sigríður Einarsdóttir

39:04

Sigþóra Kristjánsdóttir

40:16

Sóley Svansdóttir

40:52

Elma Eysteinsdóttir

41:15

Rakel Káradóttir

41:18

Sara Dögg Pétursdóttir

43:07

Bryndís María Davíðsdóttir

44:32

Það var ekki síður hörð keppni í ljósmyndakeppninni og barst fjöldi skemmtilegra mynda. Hér má sjá sigurmyndirnar í hverjum flokki:

Vetrahlaup UFA 2020 Bleikastaliðið Eldingarnar
Bleikasta liðið - Eldingarnar
Vetrahlaup UFA 2020 Plankinn
Plankinn - VES liðið
Vetrahlaup UFA 2020 Frumlegastaliðsmyndin Elli Og Viðhöldin
Frumlegasta liðsmyndin - Elli og viðhöldin
Vetrahlaup UFA 2020 Handstaða Búbblurnar
Handstaða - Búbblurnar