Meðfylgjandi samantekt er leiðbeinandi fyrir þá aðila sem standa fyrir almenningshlaupum eða hafa hug á því. Ágætt er að hugsa framkvæmd hlaupa í stigum. Byrja á því að skilgreina markmið eða tilgang og vinna síðan skipulega að einstökum atriðum eftir eftir því sem nær dregur hlaupinu. Athugið að þessi listi er ekki tæmandi og er einnig of ítarlegur fyrir smærri hlaup. Ákvörðunin um markmið hlaupsins ræður töluvert um það hversu mikið er lagt í framkvæmdina. Ef um götuhlaup á stöðluðum vegalengdum er að ræða þurfa þau að mæta ákveðnum skilyrðum svo afrek séu tæk á afrekaskrá svo dæmi sé tekið.
1. stig: Markmið, tilgangur
- fá sem mestar tekjur (Íþróttafélög)
- tækifæri fyrir hlaupara til að ná árangri (stöðluð götuhlaup)
- fá fólk til að hreyfa sig (Heilsuhlaup Krabbameinsfél.)
- fá "goodwill" (66°N)
- vekja athygli á málstað (Friðarhlaup, Vímuvarnarhlaup, Hjartadagshlaup)
- vekja athygli á stað/landsvæði (Mývatn, Vesturgatan)
- áskorun fyrir ,,ofurhlaupara" (Laugavegshlaupið, Jökulsárhlaupið, Þorvaldsdalsskokk)
2. stig: Undirbúningur: Grundvallaratriði
- verkefni vikum og mánuðum áður
- úttekt á líklegri hlaupaleið (ath. gatnamálayfirvöld)
- stuðningsaðilar (samningagerð)
- verðlaunapeningar (hönnun og leitun tilboða)
- ákvörðun um flokkaskiptingu
- ákvörðun um þátttökugjald
- keppnisnúmer
- T - bolir
- fyrsta kynning (bæklingur og dreifibréf)
3. stig: Framkvæmd: Verkefni ca. 1-4 vikum áður
- mæling á hlaupaleið og kort
- lögregla
- sjúkragæsla
- starfsmenn
- skipulag kynningar (auglýsingar, viðtöl, vefur, samfélagsmiðlar)
- útdráttarverðlaun (hafa samband við líklega stuðningsaðila)
4. stig: Framkvæmd: Tékklisti vikuna áður
- merking á hlaupaleið (vegvísar og km merkingar)
- kort af hlaupaleið
- lögregla
- sjúkragæsla
- drykkir og önnur næring
- skipulag á verkefnum starfsmanna
- auglýsingar
- fjölmiðlar (fréttatilkynningar og viðtöl)
- skráning og keppnisgögn
- keppnisnúmer og nælur
- aðstaða við rásmark (mark, sviðsvagn, rennur, kaðlar og tjöld)
- hljóðkerfi
- búningsaðstaða
- borðar og auglýsingaskilti
- verðlaun og verðlaunaafhending
- tímataka og vinnsla úrslita
5. stig: Framkvæmd: Hlaupdagur - tékklisti
- hlaupaleiðin sé klár
- lögregla og sjúkragæsla mætt og klár á sínu
- drykkir og önnur næring á sínum stað
- allir starfsmenn séu mættir á sína staði
- fjölmiðlar fái úrslit
- skráning
- aðstaða við rásmark í lagi
- búningsaðstaða
- borðar og auglýsingaskilti á sínum stað
- verðlaun og verðlaunaafhending
- tímataka og stikktímataka
- vinnsla úrslita