birt 14. febrúar 2016

Að lokinni verðlaunaafhendingu fyrir hlaup ársins og langhlaupara ársins sem fram fór í byrjun febrúar, ræddi hlaup.is við fulltrúa hlaupanna sem kosin voru bestu hlaup ársins.

Fossvogshlaupið var kosið besta götuhlaupið árið 2015. Formaður Almenningsíþróttadeildar Víkings, Tonie Gertin Sörensen sagði okkur frá hlaupinu og hvernig staðið er að framkvæmdinni m.a.

Mt. Esja Ultra var kosið besta utanvegahlaupið árið 2015. Elísabet Margeirsdóttir er einn af aðstandendum hlaupsins og hún sagði okkur frá hlaupinu og hver tilgangurinn var með breyttu sniði í fyrra.