birt 23. apríl 2016

Hlaup.is var á staðnum þegar Víðavangshlaup ÍR fór fram á sumardaginn fyrsta. 699 hlauparar tóku þátt í 101. Víðavangshlaupi ÍR í ágætis veðri í miðborg Reykjavíkur. Að vanda var hlaup.is með myndavélarnar á lofti en myndirnar koma á hlaup.is innan skamms. Þá tóku fulltrúar hlaup.is einnig upp skemmtileg myndbönd á nokkrum stöðum í brautinni. Fyrst voru þátttakendur teknir upp á leið sinni niður Laugaveg, þá á Hverfisgötu og að lokum í markinu. Hér að neðan má sjá þessi skemmtilegu myndbönd.

Hlauparar á leiðinni upp Hverfisgötu

Hlauparar á leiðinni niður Laugaveginn

Þátttakendur koma í mark eftir að hafa lagt allt í sölurnar.