birt 15. maí 2016

Við tókum nokkur viðtöl eftir Vormaraþonið og hér fyrir neðan má sjá árangurinn af því.

Interview after Spring marathon 2016 - Chen Peng Ku and Ming-Je Tsai

Interview after Spring marathon 2016. Helena Stening and Sandra Dawood.

Interviw after Spring marathon 2016. Connor William Bridle.

Hálf maraþon hlauparar leggja af stað.

Pétur Helgason sagði okkur frá undirbúningi hlaupsins og ýmsu fleiru. Við spáðum aðeins í veðrið og markmiðin fyrir Haustmaraþonið.

Dagur Egonsson sagði okkur frá því hvernig var að hlaupa í dag og fór aðeins yfir maraþontoppinn hjá sér á síðasta ári. Hann er hluti af Icelandair skokkhópnum og hann fræddi okkur um hann og væntanlegt Icelandair hlaup.

Katrín Lilja tók þátt í sínu fyrsta maraþoni með ótrúlega stuttum fyrirvara. Hvernig fór hún að þessu eiginlega? Rigningin gerði okkur lífið aðeins leitt, en fyrir vikið fékk Katrín á sig "fegurðarlinsueffekt" sem þekkist í Hollywoodmyndum (hún þarf reyndar ekkert á því að halda). Við heyrðum samt allt sem hún sagði.

Guðjón Karl Traustason er mikill reynslubolti þegar kemur að maraþonhlaupum og er sonur stórhlauparans Trausta Valdimarssonar. Við ræddum við hann um maraþonin, þríþrautarkeppnirnar og svo gaf hann flott heilræði í lok viðtalsins.