birt 08. september 2005

Í Brúarhlaupi á Selfossi var ekki hægt að afhenda flokkaverðlaun, vegna þess að ekki vannst tími til að koma öllum skráðum gögnum inn tímanlega. Þrátt fyrir að boðið væri upp á netskráningu, skráði sig mikill fjöldi rétt fyrir hlaup. Þetta olli framkvæmdaraðilum hlaupsins töluverðum vandamálum.

Það væri óskandi að hlauparar nýttu sér meira netskráningu og léttu þar með framkvæmdaraðilum hlaup lífið.