Um hlaupið

  • Vegalengdir1,4 km, 5 km, 10 km
  • Dagsetning17. júní 2021
Sjá úrslit

Fjölnishlaup Olís verður ræst í 33. sinn á þjóðhátíðardaginn, 17. júní klukkan 11:00 frá Íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi við Dalhús.

Tímasetning

Fimmtudaginn 17. júní 2021, kl. 11:00.

Vegalengdir

Boðið er upp á 10 km hlaup, 5 km hlaup og 1,4 km skemmtiskokk. Bæði 10 km og 5 km vegalengdirnar eru löglega mældar. Athugið að aðeins 10 km hlaup gildir til stiga í stigakeppni Gatorade sumarhlaupanna.

Hlaupaleiðir

Kort af öllum hlaupaleiðum er neðst á þessari síðu.

10 km hlaupið verður ræst kl 11:00 frá göngustíg við Gagnveg sem er um 500 m norðaustan við Íþróttamiðstöðina í Dalhúsum. Hlaupið verður vestur fyrir fótboltavöllinn eftir Gagnvegi og um Fjallkonuveg og þaðan beygt niður göngustíg í átt að Grafarvogi og hann hlaupinn í vesturátt. Beygt verður inn í Bryggjuhverfið um Gullinbrú og þaðan verður hlaupið eftir göngustíg meðfram Elliðaárósum og yfir nýju brýrnar við Geirsnef. Rangsælis hringur er tekinn um Geirsnef yfir gömlu brýrnar og meðfram Sævarhöfða. Síðan verður sama leið hlaupin til baka. Endamark er við Íþróttamiðstöðina í Dalhúsum. Brautin er annáluð fyrir góðar bætingar enda mjög flöt ef frá er talinn upphafs- og lokakílómetri.

5 km hlaupið verður ræst kl 11:10 frá endamarki. Hlaupaleiðin er sú sama og í 10 km hlaupinu fyrri helming hlaupsins, en í Bryggjuhverfi verður snúið við og hlaupið sömu leið til baka.

Skemmtiskokkið verður ræst skömmu á eftir 5 km hlaupinu. Í skemmtiskokkinu verður 1,4 km hringur hlaupinn um Dalhús og yfir á Fjallkonuveg.

Skráning og þátttökugjald

Þátttökugjöld eru 3.000 kr fyrir 10 km hlaup og 2.500 kr fyrir 5 km hlaup. Í skemmtiskokkið er þátttökugjaldið 1.000 kr og hver fjölskylda greiðir að hámarki 3.000 kr fyrir þátttöku í skemmtiskokki. Skráning fer fram á netskraning.is fram til miðnættis miðvikudaginn 16. júní.

Afhending gagna verður frá kl. 18:00-20:00 þann 16. júní og á keppnisdag frá 09:30 til 10:15 í anddyri Grafarvogslaugar í Íþróttamiðstöðinni í Dalhúsum.

Athugið að aldurstakmark í 10 km hlaupið er 12 ára.

Verðlaun

Vegna ástands verður ekki formleg verðlaunaafhending að hlaupi loknu.

  • Farandbikarar fyrir 1. sæti karla og kvenna í 10 km hlaupum.
  • Fjöldi glæsilegra útdráttarverðlauna frá Olís.
  • Keppendur í 10 fyrstu sætum karla, kvenna og í aldursflokkum í 10 km hlaupi öðlast stig í keppni um stigahæstu hlaupara í Gatorade sumarhlaupum.
  • Sigurvegarar í aldursflokkum fá sendar viðurkenningar

Aldursflokkar

5 km og 10 km hlaup

  • 18 ára og yngri
  • 19-39 ára
  • 40-49 ára
  • 50-59 ára
  • 60 ára og eldri

Skemmtiskokk

  • 10 ára og yngri
  • 11-12 ára
  • 13-14 ára
  • 15 ára og eldri

Nánari upplýsingar

Vefsíða hlaupsins.