Þátttökugjald

  • 3 km - 20 ára og yngri1.000 kr
  • 3 km - 21 árs og eldri1.500 kr
  • 5 km - 20 ára og yngri1.000 kr
  • 5 km - 21 árs og eldri2.750 kr
  • 10 km - 20 ára og yngri1.000 kr
  • 10 km - 21 árs og eldri2.750 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir3 km, 5 km, 10 km
  • Dagsetning20. september 2022
Sjá úrslit

Flensborgarhlaupið fer fram í Hafnarfirði þann 20. september. Allur ágóði af Flensborgarhlaupinu 2022 rennur til verkefnisins Ungt fólk og sorgin á vegum Sorgarmiðstöðvarinnar, Skt. Jósefsspítala. Hlaupið hefst á göngustíg fyrir framan Íþróttahúsið við Strandgötu.

Tímasetning

Þriðjudagurinn 20. september 2022 kl. 17:30.

Vegalengdir

10 km og 5 km með tímatöku og 3 km skemmtiskokk án tímatöku. Vegalengdir eru mældar af viðurkenndum aðilum. Hlaupið er ræst þannig að fyrst fara 10 km hlauparar, svo 5 km og loks 3 km.

Hlaupaleiðin og staðsetning

Hlaupaleiðin er svokölluð Bessastaðaleið – sjá kort hér fyrir neðan og lýsingu hér á eftir.

Hlaupið hefst við strætisvagnaskýlið við Fjarðargötu gegnt íþróttahúsinu (Strandgötu). Hlaupið er á göngustígnum framhjá Norðurbakka í átt að Sundhöllinni og samhliða Herjólfsgötu eins langt og hægt er á göngustígnum, alla leið framhjá Hrafnistu, Herjólfsbraut og upp á gamla Álftanesveginn. Þar er beygt til vinstri (í vestur), inn á gamla Álftanesveginn, að undirgöngunum undir nýja Álftanesveginn, að skilti sem vísar m.a. á varpland og þar nærri verður snúningspunktur. Þaðan er farin sama leið til baka niður á Fjarðargötu.

Drykkjarstöð er á miðri leið fyrir þá sem hlaupa 10 km.


Skráning

Skráning fer fram á hlaup.is, sjá hér fyrir ofan, til kl. 11 á hlaupdegi. Ekki er hægt að skrá á staðnum en afhending keppnisgagna er frá kl 16:00 í Íþróttahúsinu á Strandgötu og þar verða verðlaun einnig afhent kl. 18:30.

Þátttökugjald

Skráningargjöld eru eftirfarandi:

  • 1.000 kr. óháð vegalengd (20 ára og yngri)
  • 2.750 kr. fyrir 10 km og 5 km hlaup
  • 1.500 kr. fyrir skemmtiskokk, 3 km

Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir þrjú fyrstu sætin í kvenna- og karlaflokki tveir aldursflokkar 17 ára og yngri og 18 ára og eldri. Verðlaunaafhending hefst kl 18:30.

Annað

Flensborgarskólinn Flensborgarskólinn skipuleggur hlaupið í samstarfi við Skokkhóp Hauka og Hlaupahóp FH.