Um hlaupið

  • Vegalengdir5 km, 10 km
  • Dagsetning2. október 2021
Sjá úrslit Myndasafn úr hlaupinu

Hjartadagshlaupið fer fram laugardaginn 2. október kl. 10.

Vegalengdir og hlaupaleið

Í boði eru tvær tímamældar vegalengdir, 5 km og 10 km. Ræst er kl. 10:00 í báðar vegalengdir inn á Kópavogsvelli en hlaupið er út Kársnes og til baka í mark inn á Kópavogsvöll. Drykkjarstöð verður á miðri hlaupaleið og eftir 5 km og við endamark. Hlaupaleiðin hefur fengið löglega mælingu. Tímataka í hlaupinu verður í höndum timataka.net.

Verðlaun

Veitt verða verðlaun fyrir fyrsta karl og konu í 5 km og 10 km hlaupi. Einnig verða veitt útdráttarverðlaun. Verðlaunaafhending fer fram strax að hlaupi loknu.

Skráning og þátttökugjald

Skráning í hlaupið fer fram á netskraning.is,  Vinsamlegast nálgist keppnisgögn í verslunina HLAUPÁR - Rjúpnasölum 1 - Kópavogi, dagana 28. sept - 1. okt. milli klukkan 12-18.

Þátttaka er ókeypis.

Aðrar upplýsingar

Þátttakendum er boðið frítt í sundlaugar Kópavogs eftir hlaup.

ÞÁTTTAKENDUR ERU HVATTIR TIL AÐ KLÆÐAST RAUÐU.

Hjartadagshlaupið er haldið í tilefni Alþjóðlegs hjartadags sem haldinn er í yfir 120 löndum á hverju ári. Markmið Hjartadagsins, er að auka vitund og þekkingu almennings á ógnum hjarta- og æðasjúkdóma og leggja áherslu á heilbrigða lífshætti svo að börn, unglingar og fullorðnir um allan heim öðlist betra og lengra líf.