Um hlaupið

  • Vegalengdir5 km
  • Dagsetning16. júní 2021

Minningarsjóður Mikaels Rúnars ætlar að standa fyrir fjölskylduhlaupi, Hlunkahlaupinu, miðvikudaginn 16. júní kl. 17.00.

Hlaupaleiðin er Hamarshringurinn í Hveragerði sem er falleg og skemmtileg 5 km leið. Rásmark og endastöð verða í Lystigarðinum við Fossflöt. Ekki verður tímataka í hlaupinu enda er skemmtanagildið aðal takmarkið.

  • Þátttökugjald er 2000 kr.
  • 16 ára og yngri greiða 500 kr.

Einnig er tekið við frjálsum framlögum.  Allt þátttökugjald rennur óskipt í minningarsjóð Mikaels Rúnars.

Nánari upplýsingar og skráning: https://www.minninginlifir.is/frettir