Um hlaupið

  • Vegalengdir1 km, 2,3 km, Hálft maraþon
  • Dagsetning13. júní 2026

Mt. Esja Ultra fjallahlaupaveislan verður haldin í fimmtánda sinn laugardaginn 13. júní 2026.

Hlaupaleiðir 2026

Í tilefni 15 ára afmælis hlaupsins verður keppt í 15 klst. hlaupi og Mt. Esja hálfmaraþoninu, ásamt ævintýrahlaupi fyrir börn. Allar vegalengdir verða ræstar frá Esjustofu á mismunandi tímum (sjá rástíma hér fyrir neðan).

MT. ESJA ULTRA Í 15 ÁR - 15 TÍMA KEPPNI! - Hversu oft klukkar þú Steininn á 15 klst? 

Hlaupaleiðin (hringurinn) verður sú gamla klassíska: Lúppan um Skógræktina, upp vinstra meginn að Steini og niður hægra megin.

Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sætin hjá körlum og konum (þau sem fara flestar ferðir á 15 klst.). Sigurvegarar í karla- og kvennaflokki fá hinn margrómaða verðlaunagrip ESJUSTEININN, sem er handgerður af steinsmiðnum Þóri Sigmundssyni og eru steinarnir sérvaldir í hlíðum Esjunnar.


Einnig verða veitt verðlaun fyrir þau (konu og karl) sem eru fyrst með 5 ferðir og 10 ferðir. ATH. sami aðili (karl og kona) getur verið fljótastur með 5 og 10 ferðir og farið lengst.


Keppendur fá skráðan fjölda ferða ásamt tíma (ath. aðeins marktíma). Tímar fyrir 5, 10 og 15 ferðir verða skráðir á ITRA (ath. sú vegalengd sem keppandi fer lengst 5, 10 eða 15).


Þegar keppnistímanum er lokið (15 klst.) og tveir eða fleiri keppendur hafa farið lengst og lokið jafnmörgum ferðum, sigrar sá sem var fyrstur með síðustu ferðina (hringinn). Þannig að tíminn í markinu eftir síðustu ferðina gildir en ekki staðsetning/vegalengd á keppnisleiðinni eftir 15 klst.


Keppendum er frjálst að ljúka keppni þegar þeir vilja en verða að fara 5 ferðir til að fá ekki DNF.


Keppnin hefst kl. 8:00 þann 13. júní og lýkur kl. 23:00 (15 klst.).

ATH. takmarkað pláss er í 15 klst. keppnina!

MT. ESJA HÁLFT MARAÞON

Hálfmaraþonið verður haldið í þriðja sinn í ár. Leiðin er um 21 km með 1.500 m samanlagðri hækkun. Hlaupið hefst við Esjustofu og verður farin vel útfærð og skemmtileg útsýnisleið um Esjurætur og -hlíðar. Tilvalin æfingakeppni fyrir lengri utanvega- og fjallahlaup t.d. Laugavegshlaupið.


Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sætin hjá körlum og konum. Sigurvegarar í hálfu maraþoni fá að auki í verðlaun hinn margrómaða verðlaunagrip ESJUSTEININN, sem er handgerður af steinsmiðnum Þóri Sigmundssyni og eru steinarnir sérvaldir í hlíðum Esjunnar.

ÆVINTÝRAHLAUP

Ævintýrahlaupið var fyrst haldið 2021 og tókst mjög vel. Börn hlaupa einir eða í fylgd forráðamanna skemmtilega og fjölbreytta leið í skóginum og enda í Esjumarkinu! Öll börn fá verðlaunapening og holla hressingu að hlaupi loknu.

Skráning

Skráning er á netskraning.is. Innifalið í skráningargjaldi:

  • Esju-bjórglasið fyrir þau sem klára hálft maraþon innan tímamarka og 5 ferðir í 15 klst. keppninni.
  • Vegleg "Finisher" gjöf fyrir þau sem klára 5 ferðir eða fleiri í 15 tíma hlaupinu.
  • Tímataka, keppnisnúmer/flaga og brautargæsla.
  • Íþróttadrykkir og næring á drykkjarstöð við Esjustofu.
  • Léttar veitingar eftir hlaup. 

Skráningargjald er ekki endurgreitt en hægt verður að gera nafnabreytingar til miðnættis 11. júní.

Aldurstakmörk
  • Mt. Esja hálft maraþon: 16 ára
  • Mt. Esja 15 tíma keppni: 18 ára

Tímatakmörk
  • Mt. Esja hálft maraþon: 6:00 klst.
  • Mt. Esja 15 tíma keppni: Keppni lýkur hjá öllum eftir 15 klst.

Útbúnaður

Sterklega er mælt með því að hver keppandi hafi eftirfarandi útbúnað til taks (skyldubúnaður fyrir keppendur í hálfu maraþoni og 15 tíma keppni):

  • Fjölnota mál til að sækja vatn í læk og á drykkjarstöð
  • Álteppi
  • Farsíma
  • Nægilegt magn af næringu og vökva (0,5-1,0 L)
  • Teygjubindi
  • Jakki (Helst vatnsheldur úr öndunarefni og með hettu) - ákveðið hvort skylda á keppnisdegi.
  • Húfa eða buff og hanskar - ákveðið hvort skylda á keppnisdegi.

Rástímar
  • Mt. Esja 15 tíma keppni - kl. 8:00
  • Mt. Esja hálft maraþon - kl. 10:00
  • Ævintýrahlaup í Esjuskógi (1 km og 2,3 km) – kl. 14:00 (bæði hlaupin fara ekki af stað á nákvæmlega sama tíma).

Nánari upplýsingar