Um hlaupið

  • Vegalengdir10 km, Hálft maraþon, Maraþon
  • Dagsetning29. maí 2021
Sjá úrslit

Hið árlega Mývatnsmaraþon fer fram laugardaginn 29. maí 2021. Haldið er af stað við Jarðböðin og hlaupið umhverfis Mývatn. Mývatnshlaupið er mikil upplifun fyrir hlaupara, ekki síst út af mikilli náttúrufegurð svæðisins. Hlaupið var lengi draumur Mývetninga og hann rættist loks 9. júlí 1995 þegar fyrsta Mývatnsmaraþonið var haldið.

Brautin

Flatur hringur kringum Mývatn, sem er þekkt fyrir náttúrulega fegurð, yfirborð vegarins er malbikað. Það reynir vel á þol og styrk hlaupara í Mývatnsmaraþoni þar sem endaspretturinn getur tekið verulega á.
42,2 km brautin er löglega mæld og skráð hjá FRÍ.

Í boði eru þrjár vegalengdir, 42 km sem eru ræstir kl 10:00, 21 km hefst kl 12:00 og að lokum fara 10 km af stað kl. 13:30.
Athugið að tímamörk í heilmaraþonhlaupinu eru 6 klukkustundir.