Stúdíó Sport hlaupið er hlaup sem hlaupahópurinn Frískir Flóamenn halda í samstarfi við verslunina Stúdíó Sport á Selfossi þann 1. maí.
Hlaup fyrir alla, unga sem aldna, byrjendur og lengra komna!
Vegalengdir
Keppt er í tveimur vegalengdum, 5 km og 10 km að viðbættu krakkahlaupi 500 m (Huppuhlaupið). Brautin er flöt og því vænleg til góðra afreka og hafa margir hlauparar náð sínum bestu tímum í hlaupum á Selfossi.
Mæting og endamark er við verslunina Stúdíó Sport, Austurvegi 9 þar sem afhending keppnisgagna fer fram. Ræsing er á Kirkjuvegi, rétt vestan við nýja miðbæinn. Hlaupið er til suðurs, út á Suðurhóla þar sem leiðir skiljast á 5 og 10 km leiðum. 5 km beygja til hægri og hlaupa um undirgöng inn í Hagaland og meðfram Ölfusá, undir Ölfusárbrú og að endamarki við versluninni Stúdíó Sport. 10 km beygja aftur á móti til vinstri á Suðurhólum og hlaupa til austurs, áleiðis að Austurhólum og til baka og síðan sömu leið og 5 km leiðin í mark.
Huppu-krakkahlaupið fer fram, samhliða Stúdíó Sport hlaupinu á Selfossi. Um er að ræða 500m hlaup/skemmtiskokk fyrir hressa og káta krakka, 12 ára og yngri. Allir mega hlaupa með þeim yngri án þess að vera skráðir. Ræsing í hlaupið er kl. 12 við verslunina Stúdíó Sport og allir skráðir þátttakendur fá þátttökuverðlaun.
Kort af hlaupaleið
Hægt er að sjá kort af hlaupaleið neðst á þessari síðu og einnig er kortið sem PDF skjal.
Allar vegalengdir eru löglega mældar og mun framkvæmd hlaupsins taka mið af reglum FRÍ um framkvæmd götuhlaupa.
![10 km hlauparar leggja af stað í Stúdíó Sport hlaupinu 2021](/media/1965/stu2021_305.jpg?anchor=center&mode=crop&width=1200&height=720&rnd=132863177920000000)
Tímasetningar
Hlaupið verður ræst kl. 10, báðar vegalengdir.
Skráning og verð
Skráning í hlaupið fer fram á hlaup.is, sjá hér efst á þessari síðu. Opið er fyrir forskráningu til kl. 20:00 sunnudagskvöldið 30. apríl 2023.
- Verð í forskráningu fyrir 5 km og 10 km hlaupin er kr. 1500 fyrir 15 ára og yngri en kr. 3000 fyrir 16 ára og eldri.
- Verð í 500m Huppu-krakkahlaupið er kr. 1000 og er það fyrir 12 ára og yngri.
Einnig verður hægt að skrá sig í versluninni Stúdíó Sport að morgni keppnisdags en þá hækkar verðið í 5 km og 10 km hlaupunum í kr. 2.000 fyrir 15 ára og yngri og í kr. 4.000 fyrir 16 ára og eldri.
Skráning í Huppu-krakkahlaupið fer fram í versluninni Stúdíó Sport frá mánudeginum 24. apríl til föstudagsins 28. apríl frá kl. 10-18 og á laugardeginum 29. apríl frá kl. 10-16.
Afhending keppnisgagna fer fram í Versluninni Stúdíó Sport, Austurvegi 9.
Verðlaun
Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í báðum vegalengdum. Auk þess verður fjöldi útdráttarverðlauna frá ýmsum fyrirtækjum á svæðinu.
Tímataka og úrslit
Rafræn tímataka verður í hlaupinu. Keppendur fá afhenta flögu sem þeir hlaupa með. Engin flaga - enginn tími!
Úrslit verða birt strax að loknu hlaupi og síðar á hlaup.is, timataka.net og í afrekaskrá FRÍ.
Nánari upplýsingar
Upplýsingar um allt sem viðkemur hlaupinu veitir Aðalbjörg Skúladóttir á netfangið abbaskul4@gmail.com eða í síma 820-6882.
Einnig á FB síðu hlaupsins.