Þátttökugjald

  • 25 km15.000 kr
  • 16 km12.000 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir16 km, 25 km
  • Dagsetning1. júlí 2023
Sjá úrslit

Þorvaldsdalsskokkið, elsta skipulagða óbyggðahlaup á Íslandi, verður haldið í 31. sinn þann 1. júlí 2023. Að þessu sinni verða tvö hlaup og eru þau í samstarfi við Landvættaverkefni FÍ. 

Sjáðu kort af leiðinni neðst á þessari síðu.

Þorvaldsdalsskokkið - Landvættur
  • Aðalhlaupið hefst við gömlu brúna yfir Ytri-Tunguá milli Dagverðartungu og Fornhaga í Hörgárdal og lýkur við Stærri-Árskóg á Árskógsströnd.
  • Vegalengd er tæpir 25 km
  • Leiðarval frá rásmarki að marki er keppendum frjáls
  • Þátttökugjald er 15.000 kr
  • Innifalið í gjaldi er gjöf frá aðalstyrktaraðila hlaupsins, 66°N, merkt hlaupinu.
  • Rúta fer frá Árskógi að rásmarki. Gjald fyrir rútuna er 1.000 kr
  • Rástími úr Hörgárdal er 12:00 og rúta fer frá Árskógsskóla kl. 11:00 (mæting 10:30).

Þorvaldsdalsskokkið - Hálfvættur
  • Hlaupið hefst fyrir ofan Brattavelli á Árskógsströnd og lýkur við Stærri-Árskóg á Árskógsströnd.
  • Vegalengd er um 16 km
  • Þátttökugjald er 12.000 kr
  • Innifalið í gjaldi er gjöf frá aðalstyrktaraðila hlaupsins, 66°N, merkt hlaupinu.
  • Rúta fer frá Árskógi að rásmarki og er rúta innifalin í þátttökugjaldi. ATH. óheimilt verður að aka upp að rásmarki og því er gert ráð fyrir að allir keppendur fari með rútu.
  • Rástími er 13:00 og rúta fer frá Árskógsskóla 12:45 (mæting 12:15)

Skráning

Forskráning fer fram hér á hlaup.is og hefst skráning í hlaupið kl. 20 sunnudaginn 15. janúar, sjá hér að ofan. Einnig er hægt að hafa samband við skipuleggjendur á thorvaldsdalsskokk@umse.is varðandi greiðslu þátttökugjalda. Skráningu lýkur fimmtudaginn 29. júní kl. 20.

Endurgreitt er í hlaupið vegna afskráninga til og með 31. maí. Frá og með 1. júní er skráningargjald ekki endurgreitt en hægt er að nafnabreyta þar til skráningu lýkur hér á hlaup.is.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um Þorvaldsdalsskokkið er að finna á vefsíðu hlaupsins.

Skilmálar hlaupsins

Keppendur taka þátt í Þorvaldsdalsskokkinu á eigin ábyrgð. Framkvæmdaaðilar geta á engan hátt verið ábyrgir vegna atburða sem verða í tengslum við hlaupið eða skaða sem keppendur hugsanlega verða fyrir eða valda öðrum meðan á þátttöku í hlaupinu stendur. Skráður þátttakandi er ábyrgur fyrir hlaupanúmeri og er óheimilt að láta það öðrum í té til þátttöku í hlaupinu. Sá sem hleypur með númer sem ekki er skráð á hann af mótshaldara er ekki gildur þátttakandiMeð skráningu í þennan viðburð staðfestir þátttakandi skilning á þessu og samþykkir skilmála hlaupsins.