Andrea Kolbeinsdóttir og Arnar Pétursson eru langhlauparar ársins 2022 mati hlaupara og lesenda hlaup.is. Verðlaunin voru afhent í fjórtánda skiptið í dag sunnudaginn, 12. febrúar. Í öðru sæti höfnuðu Mari Järsk og Þorleifur Þorleifsson. Í þriðja sæti lentu Þorsteinn Roy Jóhannsson og Íris Anna Skúladóttir.
Andrea Kolbeinsdóttir hlýtur þennan titil í annað skiptið og Arnar Pétursson hlýtur þennan titil í þriðja skiptið.
Kosið var á milli sjö hlaupara í karlaflokki og sjö hlaupara kvennaflokki. Niðurstöður kosningarinnar eru eftirfarandi:
Karlaflokkur
Röð | Nafn |
1 | Arnar Pétursson |
2 | Þorleifur Þorleifsson |
3 | Þorsteinn Roy Jóhannsson |
4 | Þorbergur Ingi Jónsson |
5 | Hlynur Andrésson |
6 | Baldvin Þór Magnússon |
7 | Þórólfur Ingi Þórsson |
Kvennaflokkur
Röð | Nafn |
1 | Andrea Kolbeinsdóttir |
2 | Mari Järsk |
3 | Íris Anna Skúladóttir |
4 | Thelma Björk Einarsdóttir |
5 | Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir |
6 | Íris Dóra Snorradóttir |
7 | Verena Karlsdóttir |
Upplýsingar um afrek hlauparanna sem lögð voru til grundvallar kosningunni er hægt að lesa um í frétt á hlaup.is. Hlaup.is mun svo birta viðtöl við hlauparana í kvöld.
Hlaup.is þakkar stuðningsaðilum sem gáfu verðlaun, Sportís, Íslandsbanka og Icelandair.