Andrea Kolbeinsdóttir og Arnar Pétursson eru langhlauparar ársins 2022

uppfært 12. febrúar 2023

Andrea Kolbeinsdóttir og Arnar Pétursson eru langhlauparar ársins 2022 mati hlaupara og lesenda hlaup.is. Verðlaunin voru afhent í fjórtánda skiptið í dag sunnudaginn, 12. febrúar. Í öðru sæti höfnuðu Mari Järsk og Þorleifur Þorleifsson. Í þriðja sæti lentu Þorsteinn Roy Jóhannsson og Íris Anna Skúladóttir.

Arnar Pétursson ADI2022 003
Arnar Pétursson

Andrea Kolbeinsdóttir
Andrea Kolbeinsdóttir

Andrea Kolbeinsdóttir hlýtur þennan titil í annað skiptið og Arnar Pétursson hlýtur þennan titil í þriðja skiptið.

Kosið var á milli sjö hlaupara í karlaflokki og sjö hlaupara kvennaflokki. Niðurstöður kosningarinnar eru eftirfarandi:

Karlaflokkur

RöðNafn
1Arnar Pétursson
2Þorleifur Þorleifsson
3Þorsteinn Roy Jóhannsson
4Þorbergur Ingi Jónsson
5Hlynur Andrésson
6Baldvin Þór Magnússon
7Þórólfur Ingi Þórsson

Kvennaflokkur

RöðNafn
1Andrea Kolbeinsdóttir
2Mari Järsk
3Íris Anna Skúladóttir
4Thelma Björk Einarsdóttir
5Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir
6Íris Dóra Snorradóttir
7Verena Karlsdóttir

Upplýsingar um afrek hlauparanna sem lögð voru til grundvallar kosningunni er hægt að lesa um í frétt á hlaup.is. Hlaup.is mun svo birta viðtöl við hlauparana í kvöld.

Tilnefndir Hlauparar Ársins 2022
Tilnefndir hlauparar 2022 frá vinstri: Þórólfur, Þorleifur, Arnar, Andrea, Mari, Íris Anna, Íris Dóra og Thelma. Á myndina vantar Hlyn, Baldvin, Þorstein Roy, Þorberg Inga, Sigþóru og Verenu

Hlaup.is þakkar stuðningsaðilum sem gáfu verðlaun, Sportís, Íslandsbanka og Icelandair.

Logo Stuðningsaðila B