Andrea Kolbeinsdóttir og Baldvin Þór Magnússon eru langhlauparar ársins 2023 mati hlaupara og lesenda hlaup.is. Verðlaunin voru afhent í fimmtánda skiptið í dag sunnudaginn, 4. febrúar. Í öðru sæti höfnuðu Halldóra Huld Ingvarsdóttir og Sigurjón Ernir Sturluson. Í þriðja sæti lentu Snorri Björnsson og Anna Berglind Pálmadóttir.
Verðlaun fyrir 1. sætið voru HOKA hlaupaskór frá Sportís ásamt 25 þús kr. gjafabréfi frá Icelandair. Verðlaun fyrir 2. sætið voru gjafabréf frá Íslandsbanka upp á 25 þús kr. og 15 þús kr. gjafabréf í Sportís. Verðlaun fyrir 3. sætið var gjafabréf frá Sportís upp á 20 þús kr.
Að auki var dregið úr lista þeirra sem kusu og fóru útdráttarverðlaunin til Helga Barðasonar á Akureyri. Hann fær HOKA skó frá Sportís senda til sín.
Andrea Kolbeinsdóttir hlýtur þennan titil í þriðja skiptið í röð og Baldvin Þór Magnússon hlýtur þennan titil í fyrsta skiptið.
Kosið var á milli sjö hlaupara í karlaflokki og sjö hlaupara kvennaflokki. Niðurstöður kosningarinnar eru eftirfarandi:
Karlaflokkur
Röð | Nafn |
1 | Baldvin Þór Magnússon |
2 | Sigurjón Ernir Sturluson |
3 | Snorri Björnsson |
4 | Arnar Pétursson |
5 | Þorsteinn Roy Jóhannsson |
6 | Þórólfur Ingi Þórsson |
7 | Kristján Svanur Eymundsson |
Kvennaflokkur
Röð | Nafn |
1 | Andrea Kolbeinsdóttir |
2 | Halldóra Huld Ingvarsdóttir |
3 | Anna Berglind Pálmadóttir |
4 | Íris Anna Skúladóttir |
5 | Thelma Björk Einarsdóttir |
6 | Rannveig Oddsdóttir |
7 | Íris Dóra Snorradóttir |
Upplýsingar um afrek hlauparanna sem lögð voru til grundvallar kosningunni er hægt að lesa um í frétt á hlaup.is. Hlaup.is mun svo birta viðtöl við hlauparana í kvöld.
Hlaup.is þakkar stuðningsaðilum sem gáfu verðlaun, Sportís, Íslandsbanka og Icelandair.