Næsta laugardag, þann 23. apríl fer Vormaraþon félags maraþonhlaupara fram í fallegu umhverfi á stígum Reykjavíkur fjarri allri umferð og skarkala. Vormaraþonið hefur fyrir löngu skapað sér fastan sess sem vorboðinn í hlaupasamfélaginu skömmu eftir sumardaginn fyrsta.
Hlaupið hefst við gömlu rafstöðina í Elliðárdalnum og verður maraþonið ræst kl. 9 og hálfa maraþonið kl 11. Aðstaða fyrir þátttakendur verður í Hinu húsinu rétt við markið og að vanda verður boðið upp á heitar vöfflur með sultu og rjóma eftir hlaupið ásamt heitu kaffi eða kakói.
Skoðaðu nánari upplýsingar um hlaupið og kort af leiðinni.
Skráning í hlaupið er hér og númer með áfastri flögu má nálgast í Sport24 vikuna fyrir hlaup og við startið.
Hitaðu upp með því að skoða myndir og vídeó frá Vor- og Haustmaraþoni frá því í fyrra.
- Skoðaðu myndasafn frá Vormaraþoni 2021
- Skoðaðu myndasafn frá Haustmaraþoni 2021
- Skoðaðu vídeó af hlaupurum í brautinni frá Vormaraþoni 2021
Skelltu þér í Vormaraþonið og taktu löngu hlaupaæfinguna í góðum hópi :-)