Um hlaupið

  • Vegalengdir12,4 km, 19 km, 34,4 km, 38,2 km
  • Dagsetning29. ágúst 2026

Tindahlaup Mosfellsbæjar í boði Nettó verður haldið í autjánda sinn laugardaginn 29. ágúst 2026. Hlaupið hefst klukkan 9:00 við íþróttasvæðið að Varmá. Ræst verður í tveimur ráshópum 5 og 7 tindar klukkan 9:00, 1 tindur og 3 tindar klukkan 11:00. 

Skoðaðu myndir frá hlaupinu 2024, 2023, 2022, 2018

Hlaupaleiðir og þátttökugjald

Boðið er upp á fjórar vegalengdir þar sem hlaupið er utanvega um fjöll, heiðar og dali í bæjarlandi Mosfellsbæjar og komið aftur í mark við Varmá. Leiðin er vel merkt. Hægt er að sjá kort af hlaupaleiðunum neðst á þessari síðu.

  • 7 tindar - 38,2 km með 1822m hækkun, 9.500 kr. Rástími klukkan 9:00
  • 5 tindar - 34,4 km með 1410m hækkun, 9.000 kr. Rástími klukkan 9:00
  • 3 tindar - 19 km með 812m hækkun, 8.500 kr. Rástími klukkan 11:00
  • 1 tindur - 12,4 km með 420m hækkun, 7.500 kr. Rástími klukkan 11:00

Sjá brautarmet hér: https://tindahlaup.is/brautarmet/

ITRA punktahlaup

Tindahlaupið hefur staðist kröfur ITRA (International Trail Running Association) og fengið eftirfarandi hlaupaleiðir viðurkenndar sem punktahlaup:

  • 3 Tindar = Erfiðleikastig 1 ITRA stig
  • 5 Tindar = Erfiðleikastig 1 ITRA stig
  • 7 Tindar = Erfiðleikastig 2 ITRA stig

Skráning og afhending gagna

Skráning í hlaupið er til miðnættis 26. ágúst er á netskraning.is. Afhending gagna og skráning verður hjá Sportís:

  • Fimmtu­dag­inn 27. ág­úst
  • Föstu­dag­inn 28. ág­úst

Hægt er að skrá sig og ganga frá greiðslu í hlaupið báða þessa daga.

ATHUGIÐ AÐ EKKI ER HÆGT AÐ SKRÁ SIG EÐA SÆKJA GÖGN  Á KEPPNISDAG.

Aðrar upplýsingar

Mikilvægt er að þátttakendur séu komnir að Íþróttamiðstöðinni við Varmá minnst 30 mín fyrir hlaup.

  • Drykkjarstöðvar á leiðinni
  • Markið lokar klukkan 16:00
  • Tímataka með flögum
  • Þátttakendur eru að öllu leyti á eigin ábyrgð í hlaupinu
  • Frítt í Varmárlaug að hlaupi loknu

Tindahöfðingi

Til að verða Tindahöfðingi þarf hlaupari að hlaupa allar fjórar vegalengdir hlaupsins. Safnaðu tindum og þú færð glæsilega viðurkenningu og sæmdarheitið Tindahöfðingi (hlaup frá árinu 2010 tekin gild).

Þeir sem gera tilkall til Tindahöfðingjans í ár eru beðnir um að senda póst á birgirkonn@gmail.com.

Nánari upplýsingar um tindana sjö og gönguleiðir.

Nánari upplýsingar

Birgir Konráðsson: birgirkonn@gmail.com.
Facebook: Tindahlaup Mosfellsbæjar
Instagram: Tindahlaup