Þátttökugjald

  • 1 tindur - 12,4 km4.000 kr
  • 3 tindar - 19 km5.000 kr
  • 5 tindar - 34,4 km5.500 kr
  • 7 tindar - 38,2 km6.000 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir12,4 km, 19 km, 34,4 km, 38,2 km
  • Dagsetning28. ágúst 2021
Sjá úrslit

Tindahlaup Mosfellsbæjar í boði ON Running verður haldið laugardaginn 28. ágúst 2021. Hlaupið hefst klukkan 9.00 við íþróttasvæðið að Varmá. Ræst verður í þremur ráshópum 5 og 7 tindar klukkan 9:00, 1 tindur kl. 11:00 og 3 tindar klukkan 11:30.

Vegalengdir og þátttökugjald

Boðið er upp á fjórar vegalengdir.

  • 7 tindar - 38,2 km með 1822m hækkun, 6.000 kr. Rástími klukkan 9:00
  • 5 tindar - 34,4 km með 1410m hækkun, 5.500 kr. Rástími klukkan 9:00.
  • 3 tindar - 19 km með 812m hækkun, 5.000 kr. Rástími klukkan 11:30 (ath. breyttan tíma)
  • 1 tindur - 12,4 km með 420m hækkun, 4.000 kr. Rástími klukkan 11:00.

ITRA punktahlaup

Tindahlaupið hefur staðist kröfur ITRA (International Trail Running Association) og fengið eftirfarandi hlaupaleiðir viðurkenndar sem punktahlaup:

  • 3 Tindar = 1 ITRA Punktur
  • 5 Tindar = 1 ITRA Punktur
  • 7 Tindar = 2 ITRA Punktar

Skráning og afhending gagna

Skráning í hlaupið fer fram á hlaup.is, sjá hér efst á þessari síðu. Skráning er til miðnættis miðvikudaginn 25. ágúst. Einnig verður hægt að skrá sig og sækja gögn fimmtudaginn 26. ágúst hjá Sportvörum Dalvegi 32 Kópavögi milli klukkan 16:30 og 20:00 og njóta mikils afsláttar af hinum ýmsu vörum frá ON, 2XU o.fl.

Einnig verður hægt að sækja gögn og skrá milli klukkan 17:00 og 20:00 að Varmá í Mosfellsbæ föstudaginn 27. ágúst.

ATHUGIÐ AÐ EKKI ER HÆGT AÐ SKRÁ SIG EÐA SÆKJA GÖGN  Á KEPPNISDAG.

Leiðirnar

Hlaupið er utanvega um fjöll, heiðar og dali í bæjarlandi Mosfellsbæjar og komið aftur í mark við Varmá. Leiðin er vel merkt. Hægt er að sjá kort af hlaupaleiðunum inni á www.mos.is/tindahlaup

Kort af leiðinni (útgáfa 1)

Kort af leiðinni (útgáfa 2)

Aðrar upplýsingar

Mikilvægt er að þátttakendur séu komnir að Íþróttamiðstöðinni við Varmá minnst 30 mín fyrir hlaup.

  • Drykkjarstöðvar á leiðinni.
  • Markið lokar klukkan 16.00.
  • Tímataka með flögum
  • Þátttakendur eru að öllu leyti á eigin ábyrgð í hlaupinu.
  • Frítt í Varmárlaug að hlaupi loknu.

Verðlaun

Verðlaun fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna í öllum vegalengdum. Einnig verða glæsileg útdráttarverðlaun fyrir alla keppendur.

Tindahöfðingi

Til að verða Tindahöfðingi þarf hlaupari að hlaupa allar fjórar vegalengdir hlaupsins. Safnaðu tindum og þú færð glæsilega viðurkenningu og sæmdarheitið Tindahöfðingi (hlaup frá árinu 2010 tekin gild).

Þeir sem gera tilkall til Tindahöfðingjans í ár eru beðnir um að senda póst á birgirkonn@gmail.com.

Nánari upplýsingar um tindana sjö og gönguleiðir.

Nánari upplýsingar

Birgir Konráðsson: birgirkonn@gmail.com.