Hlaupasería FH og BOSE eru þrjú hlaup sem fara fram í janúar, febrúar og mars. Hlaupin eru jafnframt stigakeppni einstaklinga. 50 fyrstu sem skrá sig eiga möguleika á glæsilegum vinningum frá The Color Run og Bose.
Staðsetning og tími Hlaupin þrjú hefjast á göngustígnum gegnt íþróttahúsinu á Strandgötu í Hafnarfirði og hefjast hlaupin stundvíslega kl.19:00 eftirfarandi daga: - Fimmtudaginn 25. janúar.
- Fimmtudaginn 22. febrúar.
- Fimmtudaginn 22. mars.
Skráning og þátttökugjald Forskráning fer fram á hlaup.is og líkur henni kl.13:00 á hlaupadegi. Einnig verður hægt að skrá sig á staðnum á hlaupadegi milli kl.18:00 - 18:45 gegn hærra þátttökugjaldi.
Þátttökugjald í forskráningu er 1.000 kr Þátttökugjald ef skráð er á staðnum er 1.500 kr
Þrettán af öllum hlaupurum sem taka þátt, eiga möguleika á glæsilegum vinningum í boði Origo (Bose vörur) og The Color Run. - 10 miðar í Color Run í Reykjavík 9. Júní, hver miði er að verðmæti 4.490 kr.
- 1 BOSE SoundSport® bluetooth heyrnartól að verðmæti 24.900 kr. í netverslun Origo.
- 2 Bose SoundLink Micro hátalara, hver hátalari að verðmæti 15.900 kr. í netverslun Origo.
- Allir vinningshafar verða tilkynntir í verðlaunaafhendingu að loknu hlaupi 22. mars. Vinningshafar geta sótt vinninga í verslun Origo í Borgartúni 37 frá og með 23. mars.
Origo býður öllum hlaupurum 15% afslátt í netverslun sinni af völdum vörum, sjá hér. Kaupendur virkja afsláttinn með því að slá inn kóðann „bosehlaup" þegar varan er greidd. Tilboðin gilda til og með 23. mars
Vegalengd 5 kílómetrar. Hraðastjórar verða í boði en þeir munu hlaupa á 20 mín, 25 mín og 30 mín.
Tímataka Tímatökuflögur verða afhentar í íþróttahúsinu á Strandgötu á hlaupadegi milli kl.18:00 - 18:45. Þátttakendur er vinsamlegast beðnir um að virða þau tímamörk. Án flögu fæst enginn tími og flagan virkar eingöngu sé hún fest við ökkla. Skila þarf tímatökuflögum eftir hlaup. Flögutími gefur nákvæman árangur þátttakenda óháð því hve aftarlega hann er við ræsingu. Markklukka verður í rásmarki.
Hlaupaleiðin Hlaupið er frá upphafspunkti (stígur gegnt íþróttahúsinu á Strandgötu), eftir göngustígnum meðfram strandlengju Hafnarfjarðar til norðurs að snúningspunkti nálægt mótum Herjólfsgötu og Heiðvangs og til baka sömu leið. Leiðin er nokkuð flöt og ákjósanleg til bætinga.
Partur af hlaupaleiðinni er á götu og eru þátttakendur beðnir um að taka tillit til þess og sýna varúð. Brautargæsla verður á hlaupaleiðinni og við gatnamót þar sem að lokað verður fyrir umferð.
1km, 2km, 3km og 4km keilur verða staðsettar á hlaupaleið.
Hlaupaleiðin er mæld af löggildum mælingamönnum.
Þátttakendur eru hvattir til að kynna sér hlaupaleiðina vel.
Sjá Hlaupasería FH og Bose á stærra korti
Salerni og fatageymsla Salernisaðstaða er í íþróttahúsinu á Strandgötu og þar er einnig hægt að geyma fatnað. Athugið að engin ábyrgð er tekin á fatnaði eða öðru sem skilið er eftir í íþróttahúsinu né á hlaupleiðinni.
Aldursflokkar Keppt verður í eftirfarandi aldursflokkum karla og kvenna; - 14 ára og yngri
- 15-29 ára
- 30-39 ára
- 40-49 ára
- 50-59 ára
- 60 ára og eldri
Stigakeppni 1.sæti gefur 15 stig
2.sæti gefur 14 stig
3.sæti gefur 13 stig
.......
13.sæti gefur 3 stig
14.sæti gefur 2 stig
15.sæti gefur 1 stig
Samanlagður stigafjöldi í heildarúrslitum og aldursflokkum í öllum hlaupunum þremur gildir.
Séu þátttakendur jafnir að stigum eftir þrjú hlaup eru það úrslit í síðasta hlaupi (mars-hlaupi) sem skera úr um sætaröðun í stigakeppninni.
Úrslit Öll úrslit ásamt stöðu í stigakeppninni verða birt á hlaup.is og á Facebook síðu Hlaupaseríu FH og BOSE eins fljótt og kostur er.
Verðlaun og lokahóf Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í karla og kvennaflokki óháð aldursflokki eftir hvert hlaup.
Verðlaunaafhendingin fer fram í íþróttahúsinu á Strandgötu strax að loknu hlaupi.
Samhliða verðlaunaafhendingu verða dregin út útdráttarverðlaun úr 50 fyrstu skráðum þátttakendur í hlaupið á hlaup.is.
Verðlaunaafhending fyrir hlaupaseríuna fer svo fram að loknum öllum hlaupum í Kaplakrika miðvikudaginn 4.apríl.
Þar verða heildarsigurvegarar fyrir hlauparöðina í karla- og kvennaflokki verðlaunaðir fyrir samanlagðan árangur í öllum þremur hlaupunum auk þess að veittir verða verðlaunapeningar fyrir fyrstu þrjú sætin í hverjum aldursflokki karla og kvenna.
Einnig verða dregin út glæsileg útdráttarverðlaun þar sem möguleikarnir fara eftir fjölda hlaupa þátttakanda;
Þrjú hlaup = þrefaldar vinningslíkur
Tvö hlaup = tvöfaldar vinningslíkur
Eitt hlaup = einfaldar vinningslíkur
Frekari upplýsingar Hér er hægt að fylgjast með hlaupinu á Facebook síðu hlaupsins.
Þátttakendur fá frítt í sund að hlaupi loknu í Suðurbæjarlaug (Hringbraut 77)
Keppendur taka þátt í Hlaupaseríu FH og BOSE á eigin ábyrgð. Framkvæmdaaðilar geta á engan hátt verið ábyrgir fyrir skaða sem keppendur hugsanlega verða fyrir eða valda öðrum meðan á þátttöku í hlaupinu stendur.
|