Vetrarhlaupasyrpan á Egilsstöðum samanstendur af sex 10 km hlaupum sem fara fram síðasta laugardag í mánuði, frá október og fram í mars að undanskildu desemberhlaupinu sem fer fram á gamlársdag. Keppendur safna stigum eftir árangri og stigahæstu einstaklingar eru verðlaunaðir í lok vetrar.
Dagsetningar hlaupa veturinn 2018-2019: 27. október 24. nóvember 31. desember (gamlárshlaup) 26. janúar 23. febrúar 30. mars
Tímasetning og staðsetning Við Íþróttahúsið á Egilsstöðum kl. 11:00, nema Gamlárshlaupið sem hefst á sama stað klukkan 10:00
Skráning Á staðnum, hálftíma fyrir hlaup.
Lengd 10 km
Þátttökugjald 1000 kr.
Hlaupaleið Frá íþróttahúsi eftir Tjarnarbraut, beygt til hægri á Selás og hlaupið sem leið liggur eftir Lagarási og Kaupvangi (framhjá Heilsugæslunni, Landsbankanum, tjaldstæðinu og Landflutningum). Hlaupið út á þjóðveginn og eftir Vallavegi í átt til Hallormsstaðar þar til komið er að merktum snúningspunkti. Sama leið hlaupin til baka.
Annað Létt hressing í boði eftir hlaup auk þess sem hlauparar frá frítt í sund. Dregið er um veglega útdráttarvinninga eftir hvert hlaup. Allir sem taka þátt fara í pottinn.
Nánari upplýsingar um hvert hlaup má finna á Facebook-síðu hlaupahópsins Hlaupahérar.
|