Aftur í Allar umræður spjall hóp
|
|
Aðalsteinn
19.2.2008 19:28:01
Það er gott að hlaupadagskráin birtist nokkuð tímanlega. Hins vegar er allspælandi að sjá að ýmis skemmtileg hlaup sem maður hefur reynt að komast í sem oftast lenda á sama deginum. Í fyrsta lagi er ég sérstaklega ergilegur af því að hlaupin á Akureyri og yfir Vatnsnesfjall eru sett á sama dag. Hvorugt hlaupið er á hefðbundnum degi sínum. Akureyringar koxuðu á sinní frábæru júlíhefð og Vatnsnesingar færa hlaupið sitt af þriðjudegi á laugardag; svo sem skiljanleg tilraun. Í maí eru þó enn þrír laugardagar lausir fyrir hlaup.
Í öðru lagi er ég sérstaklega ergilegur yfir því að Akraneshlaupið sé núna sett ofan í Neshlaupið. Þeir voru sjálfir ekki mjög ánægðir um árið þegar Akureyringarnir gerðu þeim það sama.
Okkur götuhlaupurum er gerður fjári mikill óleikur að láta okkur þurfa að velja svona á milli. Fyrir utan svekkelsið þegar maður kemst ekki í neitt hlaup þann daginn og missir af báðum það sumarið.
|
|
Torfi
19.2.2008 22:53:53
Ég fékk fyrir nokkrum dögum tilkynningu um að færa eigi Akraneshlaupið til laugardagsins 5. júlí í tengslum við írska daga sem þá eru á Akranesi. Það lendir því ekki ofan í Neshlaupinu, en lendir hinsvegar á sama tíma og Þorvaldsdalsskokkið. Þessi breyting er komin inn í hlaupadagskrána.
|
|
Aðalsteinn
20.2.2008 08:29:06
Það finnst mér illskárra af því að um ólík átök er að ræða.
|
|
Geiri
20.2.2008 12:00:50
Hvað finnst ykkur um 01.05.08
Þarna er búið að setja fjögur hlaup á þennan dag. Ég hefði helst viljað hlaupa þau öll en það verður varla úr þessu
Í fyrra voru Leiknishlaupið og Hérahlaupið á sama degi og sennilega ætluðu menn að forðast það, en það ekki tekist betur en þetta.
|
|
Pjesta
24.2.2008 12:36:06
Þennan dag er alltof mikið um að vera. Hér þurfa einhverjir að fara að tala saman. Það gengur ekki að hafa öll þessi hlaup á sama deginum.
Afhverju mátti Akureyrarhlaupið td. ekki vera áfram í september?
21.06.2008 - Fjallaskokk yfir Vatnsnesfjall
21.06.2008 - Akureyrarhlaup KEA
21.06.2008 - Skógarhlaup í Hallormsstaðaskógi
21.06.2008 - Esjuhlaup SPRON og Ferðafélags Íslands
|
|
Þorgeir hjá Mývatnsstofu
4.3.2008 21:15:49
Vill bara minna á Mývatnsmaraþonið 31.maí. Það hefur alltaf verið um Jónsmessuna en kemur kanski betur út í endaðan maí, hver veit? Er vitað um fleiri hlaup á þessum tíma?
|
|
Hávar Sigurjónsson
5.3.2008 11:50:00
Ég fæ í sjálfu sér ekki séð að dagsetningin rekist á neitt annað en hins vegar hefði mátt hafa í huga þegar hlaupið var fært fram um 1 mánuð að mjög margir maraþonhlauparar sem hyggja á maraþon í vor verða nýlega búnir að hlaupa þegar kemur að Mývatnsmaraþoni í ár. París, London, Boston, Kaupmannahöfn eru öll vinsæl hlaup og eru í apríl og maí. Fjölmargir stefna á þessi hlaup og þeir hlaupa tæplega heilt maraþon á Mývatni 2-6 vikum síðar. kannski verður þáttakan í styttri vegalengdunum meiri fyrir vikið ekki síst þar sem Akraneshlaupið hefur verið fært frá maí og yfir í júlí.
|
|
Mr. Carrot5
20.3.2008 13:30:36
CENSORED This post has been censored by an administrator
|
|
GanjaBoy5
20.3.2008 13:37:42
CENSORED This post has been censored by an administrator
|
|
Settor99
21.3.2008 06:05:04
CENSORED This post has been censored by an administrator
|
|
Stinky62
21.3.2008 06:48:35
CENSORED This post has been censored by an administrator
|
|
Red57
21.3.2008 07:08:41
CENSORED This post has been censored by an administrator
|
|
John31
21.3.2008 08:10:25
CENSORED This post has been censored by an administrator
|
|
SouthWind37
21.3.2008 10:12:05
CENSORED This post has been censored by an administrator
|
|
Arnold51
21.3.2008 13:58:31
CENSORED This post has been censored by an administrator
|
|
JXL80
21.3.2008 14:32:24
CENSORED This post has been censored by an administrator
|
|
Settu inn athugasemd:
|
|