Aftur í Allar umræður spjall hóp
|
|
Áslaug Ösp
2.11.2004 13:47:51
Hlauparar tökum á þessari vitleysu: Það er ekki einleikið hve hugsunarlaust konum er skutlað aftur fyrir karla enn þann dag í dag. Í annað sinn á stuttum tíma greiddi ég af mínu VISA korti fyrir hlaupaferð okkar hjóna til útlanda. Í annað sinn voru Kára sendir miðarnir og og afritin af VISA miðunum mínum. Ekki nóg með það, þegar ég fór að skoða miðana stóð á Kára miðum NAFNIÐ HANS og að þetta væru miðar fyrir hann. Á mínum miðum stóð NAFNIÐ HANS og að þetta væru miðar fyrir mig. Afsakanirnar sem ég fékk í bæði skiptin á þessu fyrirkomulagi voru svo lélegar að þær eru ekki eftir hafandi. Hvenær skyldum við vakna og taka á svona smámálum? Það er lágmark að kona fái afritin af sínum skuldaviðurkenningum árið 2004 - er það ekki?
|
|
Aðalsteinn
2.11.2004 14:13:03
Múslimar miða tímatal sitt við þann atburð að Múhameð sigraði Mekka í miklu blóðbaði. Saga þín og aðrar álíka benda til að Hið íslenska bankakerfi notist við sama tímatal. Í því er núna árið 1482.
|
|
Aðalsteinn
8.11.2004 13:20:17
Lagfæring: Múhameð flúði frá Mekku 622 og við það er tímatalið miðað. Hann kom aftur 630 og sigrði. Þetta vita náttúrlega næstum allir.
|
|
Gamli
8.11.2004 23:34:15
Borgaði Áslaug með kredit en Kára
var kvittunin send ásamt miðunum,
en ef hún nú væri með útvortis nára
þá umsneru bankarnir siðunum.
Gamli
|
|
Settu inn athugasemd:
|
|