Hausmynd2018-RM2017
Squeezy Sport Nutrition
Fréttir
Nýjustu fréttir
Fréttir 2016
Fréttir 2015
Fréttir 2014
Fréttir 2013
Fréttir 2012
Fréttir 2011
Fréttir 2010
Fréttir 2009
Fréttir 2008
Fréttir 2007
Fréttir 2006
Fréttir 2005
Fréttir 2004
Fréttir 2003
Fréttir 2002
Fréttir 2001
Fréttir 2000
Fréttir 1999
Fréttir 1998
Fréttir 1997
Leit
Áhugavert
Hlaupadagskrá 2019
Skráningar í hlaup
Panta prógram
100km hlauparar
Félag maraþonhl.
Hvítt bil 10 á hæð
Hvítt bil 10 á hæð - 3
Æfingadagbók - 115x79
Hvítt bil 5 á hæð - 1
hlaup.is á Facebook
Hvítt bil 5 á hæð - 3
English
Hvítt bil 10 á hæð - 2
Póstur torfi@hlaup.is
Fréttir  >  Nýjustu fréttir
3.9.2018
Tímar í Reykjavíkurmaraþoninu ógildir

  Þátttakendur í heilu og hálfu maraþoni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka fá tíma sína ekki viðurkennda vegna mistaka við framkvæmd hlaupsins. Aðstandendur Reykjavíkurmaraþonsins sendu frá sér tilkynningu þess efnis í dag.

Brautin 213 metrum of stutt
Færa þurfti grindur við snúningspunkt á Sæbraut stuttu fyrir hlaup vegna umferðar og láðist að færa þær til baka aftur. Afleiðingin varð sú að hlaupaleiðin var 213 metrum of stutt. Þetta hefur verið staðfest með endurmælingu á allri brautinni.

Yfirdómari hlaupsins og Dómstóll Reykjavíkurmaraþons, sem í eiga sæti fulltrúar frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur og Frjálsíþróttasambandi Íslands, hafa komist að þeirri sameiginlegu niðurstöðu að úrslitin í maraþoni og hálfmaraþoni skulu standa þ.e. að verðlaunahafar í öllum flokkum eru gildir verðlaunahafar í hlaupinu og í Íslandsmeistaramótinu í maraþoni. Tímarnir eru hinsvegar því miður ógildir vegna þess að brautin var of stutt og verða því ekki færðir í afrekaskrá Frjálsíþróttasambands Íslands. Þá er óvíst hvort að erlend hlaup taki tímana gilda sem inntökuskilyrði í sínar keppnir.  

Þessi tíðindi eru einstaklega hvimleið fyrir hlaupara sem margir hverjir lögðu mikið á sig í löngum undirbúningi fyrir Reykjavíkurmaraþon. Afrek Arnars Péturssonar, 2:26:43 í maraþoni, sem er besti tími Íslendings í maraþonhlaupi hér á landi er svo dæmi sé tekið ógilt.

Íþróttabandalag Reykjavíkur hefur beðið hlaupara innilega afsökunar á þessum mistökum í tölvupósti sem sendur var í dag.

„Í ár eins og undanfarin ár var lagður mikill metnaður og vinna í að gera þessa miklu hlaupahátíð sem glæsilegasta og eru framkvæmdaaðilar hlaupsins því niðurbrotnir yfir þessu. Nú þegar er búið að ákveða að fjölga enn frekar eftirlitsmönnum á brautinni á næsta ári til að koma í veg fyrir að þetta geti endurtekið sig," segir í tilkynningu frá hlaupahöldurum.

 

Til baka
 
 
Athugasemdir
 
 
Settu inn athugasemd:













 
Sportvörur 2XU Júní 2019
Hvítt bil 5 á hæð - 3
 
© Allur réttur áskilinn. Birting á þessu efni á öðrum miðlum er óleyfileg nema með leyfi hlaup.is