Súlur Vertical er spennandi áskorun sem fer fram á Akureyri þann 13. október
Tímasetning Hlaupið byrjar kl 10:00 laugardaginn 13. október í Kjarnaskógi/Hömrum. Hægir hlauparar fara af stað 10:00 en hraðir fara af stað kl. 10:30. Startað er í 18 km hlaupið klukkan 11:30.
Vegalengd Boðið er upp á tvær vegalengdir í ár. Lengri leiðin er 28 km með um 1400 m hækkun. Styttri leiðin er 18 km með 450 m hækkun
Skráning og verð Forskráning í hlaupið fer fram á hlaup.is og er til kl. 22:00 föstudaginn 12. október og kostar 4.000 kr. Athugið að afhending gagna er milli 9:00-9:30 inn á Hömrum þar sem startað er. Eftir forskráningu kostar 5.000 kr í hlaupið og verður hægt að skrá sig á frá 9:00 - 9:30 á Hömrum þann 13. október.
Verðlaun Glæsileg verðlaun fyrir fyrstu þrjá í karla- og kvennaflokki
Skyldubúnaður
Skyldubúnaður fyrir 28km hlaupið: - Sími (fullhlaðinn)
- 0.5l vatn
- Vatnsheldur jakki með hettu (mælt með ekki minna en 10000 Schmerber)
- Létt peysa
- Síðar buxur
- Húfa eða buff
- Vettlingar
- Broddar (sambærilegir og Veriga Mount Track)
- Álteppi
Mandatory kit for 28km run:
- Mobile/cell phone
- Supply of water of 0.5 litre minimum
- Jacket with hood (recommended 10 000 Schmerber)
- Light top with long sleeves or sweater
- Long-legged trousers
- Cap or bandana or Buff
- Gloves
- Crampons (similar to Veriga Mount Track)
- Survival blanket
- Recommended kit
- Survival blanket
- Food (gel)
Hlaupaleið Súlur Vertical byrjar í Kjarnaskógi/Hömrum, hlaupið upp á Súlur (1170m) og niður aftur og hlaupinu lýkur í miðbæ Akureyrar.
Start við Hamra í Kjarnaskógi
Nánari lýsing: Startað er á tjaldsvæðinu á Hömrum (efri klósett við litlu tjarnirnar), hlaupið niður eftir smá lúppu að neðsta skála á Hömrum og þaðan stystu leið inn í hið svokallaða rómantíska rjóður, þaðan er hlaupið að Ríkishringnum í Kjarna og hann hlaupinn réttsælis að hjólabrautinni sem liggur upp í Gamla. Frá skálanum gamla er hlaupin hjólaleiðin upp á hömrunum, fram hjá Fálkafelli að Súlubílastæði. Frá Súlubílastæði er hlaupið upp stikuðu gönguleiðina upp á topp Ytri-Súlu (að vörðu 1170 m hæð), þar er snúningspunktur og sama leið síðan hlaupin til baka niður á bílastæði.
Frá Súlubílastæði er stysta leið hlaupin að Steypustöðinni og þaðan yfir Þingvallastræti á gangbraut. Síðan er hlaupið að Glerá og beygt til hægri göngustíg áður en komið er að ánni. Göngustígunum er fylgt því sem næst meðfram Glerá alveg að gatnamótum við Háskóla Akureyrar. Frá Háskólanum er hlaupin göngustígur meðfram Borgarbraut og beygt af Borgarbraut göngustíg að Klettaborg. Klettaborg er fylgt að Byggðavegi og síðan beygt inn Sjafnarstíg framhjá Oddfellow. Frá Oddfellow er hlaupið yfir gangbraut og svo í norður að Lögreglustöðinni og þaðan stysta leið að Brekkugötu og niður hana framhjá Ráðhústorginu og endað í miðju Hafnarstræti.
*Styttri vegalengdin fer nákvæmlega sömu leið, nema sleppir því að fara upp á Súlur.
*Brautin er mjög vel merkt
 28 km leiðin
 Hluti leiðarinnar
Annað Frekari upplýsingar hjá Sonju Sif - sonjasifj@gmail.com.
|